brjálað að gera í sveitasælunni :o)
Jæja....þá er að koma miðnætti á þessum annasama föstudegi og ég fann smá tíma til að setjast niður og blogga :o)
Þetta er búinn að vera rosa kreisí tími í mínu lífi þessi undanfarni mánuður. Við höfum séð um gistiþjónustuna og fjölskylduviku. Guð er að tegja mig og toga svo mér finnst ég vera að slitna í sundur...en Hann tosar ekki meira en ég þoli, svo ég lafi enn saman.
Ég er búin að vera í miklu baksi með þetta allt... Unnar er með "þetta er ekkert mál-sjónarhornið" fyrir okkur bæði.
Mér hefur hinsvegar fundist þetta mikið mál og bara ferlega erfitt. Mér hefur verið sérstaklega illt í hjartanu Davíðs vegna... finnst ég vanrækja hann og bara sinna honum á hlaupum. Hann
plummar sig samt fínt þessi elska... er voða kátur með allt þetta brölt og vesen.Ég er að reyna að taka ábyrgð á þessari ákvörðun okkar að sjá um þetta batterý,og reyni að sameina þetta eins og ég get. Núna erum við komin með fleiri duglega krakka svo ég sé fram á að geta sett meira fyrir og verið svo meira með Davíð, minna í verkunum. Ég hlakka til og sé fyrir mér eðlilegra fjölskyldulíf :o)
Annars gengur allt rosa vel hér. Fullt að gera og allt gengið upp og gestir farið ánægðir með dvölina.
Elín Svava systir mín er nú á leiðinni frá Reykjavík með Dagnýju vinkonu sinni, og ætla þær að kíkja í heimsókn til okkar :o) Hún hefur aldrei komið hingað, svo það er tími til kominn finnst mér! Maður má nú alveg sinna stóru systur stundum :o)
....hey, og já! ekki má nú gleyma því að ég er að fara í sumarfrí!!! betur sleppt því að væla yfir hvað þetta væri allt erftitt... við litla fjölskyldan erum að fara í sumarbústaðinn okkar í Vopnafirði í heila viku!!! oh hvað verður gaman og ég er orðin svo spennt. Villa bauðst til að leysa okkur af fyrstu vikuna í júlí...sem er bara bráðum! við förum strax eftir samkomu á sunnudag :o) Magnað meiriháttar frábært :o)
Jæja, nú er ég farin að dotta yfir tölvunni... langur dagur framundan svo ég hugsa að ég fari að skella mér í háttinn :o)
koss og knús....og sérstakt kreist til ykkar sem nenntuð að lesa þessa ruglingslegu langloku *kreist!!!!*
Alda palda.

4 Comments:
Hæ Alda mín!
Gott að heyra að þú hangir enn saman ;)
Við höfum það fínt í stóru borginni, vorum reyndar að koma úr sveitasælunni fyrir vestan og áttum dásamlegan tíma þar.
Njótið samvistanna í Vopnafirðinum fagra.
Hlakka til að "hittast" þegar við komum öll aftur heim í heiðardalinn.
Kveðjur frá okkur öllum
Álfh. og co.
Já ég tek þokkalega kreistið til mín... ;)
En þið eruð að fá eðal unglinga til starfa og við hlökkum til að fá þau aftur í starfið fyrir sunnan eftir svona vinnu ;)
OOOg Alda, þú ert að standa þig svo rooooosalega vel, ég dáist af þér, það eru ekki margir sem gætu þetta af svona miklum dugnaði og þú, þú ert svo sannarlega one of a kind... og pældu í því að þú ert vinkona mín (hvernig hefur þú þolað mig öll þessi ár... úffff) ég er svoo þakklát Guði fyrir þig Aldan mín...
Elska þig Da!
Þín Sta your one and only...
Já Alda mín... þú átt alla mína samúð! :) Skil örugglega manna best hvernig þér líður! Passið þið ykkur bara að skilja vinnuna eftir þegar þið farið í fríið...
Baráttukveðjur, Hrefna María og stækkandi fjölskylda.
Hæ luv
Já það verður þvílíkt notó að fara í smá sumarfrí;) skemmtið ykkur rosa vel og njótið þess í botn ;) knús og koss
Skrifa ummæli
<< Home