nú þarf ég að standa mig í stykkinu!
Jiiiiiiiiiiiiiiiii....ég trúði því varla þegar ég opnaði bloggið mitt að það væru komin 2 komment!!!!! ég ákvað að prufa fyrst að blogga einu sinni og ath hvort ég myndi nokkuð nenna því aftur áður en ég segði nokkrum manni frá!!!! Úff, en nú er pressan komin! 2 comment sem ég verð að standa undir!!!! ;o)
Ég er alsæl í sveitinni...er að vinna núna...smá pása. Það er yndislegt veður hér í skóginum, sól og sumar, og ég klæddi mig í sumarlegt pils og tilheyrandi í tilefni veðurs :o)
Davíð er í aðlögun í nýja leikskólanum með pabba sínum... rosalega er skrítið að vera allt í einu án hans! Ég stend mig stöðugt að því að vera með puttana í þessu... hvernig hann er klæddur, hvort hann sé með snuð... Ég þarf aðeins að bakka og leyfa Unnari að spreyta sig, enda gerir hann það með glæsibrag!
Það var snilldar flugdrekakennsla í skólanum í dag, maður frá Panama kom og kenndi okkur flugdrekasmíð frá Guatemala... þar tíðkast að þegar einhver deyr er gerður flugdreki með mynd af viðkomandi, og ýmsum orðum sem tengjast honum...bara það sem fólki finnst persónulegt og minnir á hann.. svo er flugdrekinn látinn fljúga yfir þorpið og allir taka þátt í að syrgja og samhryggjast. Soldið falleg aðferð finnst mér :o)

Börnin hér í Hallormsstaðaskóla eru hins vegar ekki alveg eins alvörugefin í þessu...einn teiknaði hauskúpu og sjóræningjaskip, annar gerði merki AC/DC hljómsveitarinnar ofl..
það sem snerti mest við mér er lítil 6 ára stelpa sem gerði flugdreka fyrir mömmu sína sem dó fyrir ári síðan. Ég held að henni hafi líka þótt gott að gera þetta...gat talað um dauða hennar á meðan hún var að búa til drekann...sem var gullfallegur.
Jæja, nóg í bili...koss og knús... Alda bloggari :o)
set með eina mynd sem ég var að finna... skírnin hans Davíðs :o)

3 Comments:
heyyyyy alda bloggari!!! detta mér nú allar dauðar lýs úr höfði!! gaman gaman...þú verður sko að vera dugleg...ekkert bara tvær þrjár færslur og svo búið!!
Til hamingju ljúfan og heyrumst fljótlega
þín B.
Alda mín, síðasta vígið fallið ... eða hvað?
Frábært framtak hjá þér, ég kem til með að heimsækja þig oft hér þó ég sé nú bara rétt hjá þér ;)
Takk fyrir að láta mig vita af blogginu þínu Alda mín! Ég mun kíkja reglulega við hér:) Sérlega gaman fyrir okkur útlendingana að geta fylgst með heimafólkinu okkar. Jú jú, við komum á Eyjólfsstaði, það er engin spurning! Hlökkum til að knúsa ykkur í kremju!!!!!!!!
Love, Kolbrún
Skrifa ummæli
<< Home