ALDA SVEITASTELPA :O)

Verið ávallt glaðir í Drottni, ég segi aftur: verið glaðir! Fil.4:4

Nafn:
Staðsetning: Eyjólfsstaðir, Egilsstaðir, Iceland

miðvikudagur, maí 24, 2006

ég er á lífi og meira en það :o)

Jæja, þá er ég komin aftur :o)
Ég átti alveg yndislega helgi með Ágústu... hún kom fljúgandi til mín á föstudag, hjálpaði mér að búa um rúm í gistiheimilinu... og svo var brunað af stað á Akureyri.... AKUREYRI HJER VÍ KOMM!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Það var spáð lélegu veðri, en ég bað Guð um að gefa okkur gott veður, sem hann og gerði! Hann er snillingur! Svo kom nokkru sinnum snjókoma á leiðinni, þá minntum við Guð á það sem hann hafi heitið okkur, og viti menn... blár himinn sýndi sig innan mínútu í HVERT EINASTA SKIPTI!!! Þetta var svo magnað að upplifa! Þessi kraftur sem bjó í Jesú þegar hann starfaði hér er svo sannarlega í okkur, og Guð vill leyfa okkur að nota hann!

Við áttum rosa ljúfa stund fyrir norðan.. vorum á yndislegu gistiheimili sem heitir Akurinn. Kristin hjón reka staðinn og andrúmsloftið var svo friðsælt og við sváfum eins og ungabörn!
Þess á milli borðuðum við á okkur gat...fórum bæði kvöldin í röð á Greifann og borðuðum í bæði skiptin það sama¨!!!!!!!!!!!! Sjúklega gott og mæli með því fyrir alla sem fara á Akureyri!!! Fengum okkur ostaveislupizzuna, bættum á hana pepparoni og sveppum og drekktum henni svo að lokum í hvíííííííítlauksolíu...namminamm!!! svooooooooooooooooo gott!!!

Svo fórum við í sund og enn of aftur var snjókoma. Við báðum Guð um að fá sól...og skýin fuku í burtu og blár himinn birtist!!!! Þetta var algjör snilld... og svona svaraði hann okkur hvað eftir annað alla helgina!
Guð er góður segi ég nú bara!

Svo er allt komið á fullt hér í sveitasælunni... gistiheimilið er komið í gang. Ég var í allan gærdag að baka brauð.... og er svo að vinna í dag og út vikuna og svo get ég hellt mér í Eyjólfsstaði.

Hmmm...ég verð eiginlega að skrifa meira seinna...það er svo allt of mikið að gera og meira en það! orðin of sein í vinnuna... koss og knús.. munið að skrifa komment svo ég viti að þið hafið kíkt..ég er ennþá svo mikill nörd í þessu og kann ekki að setja inn gestabók :o/
Guð blessi þig í dag!

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæms... geggjað að heyra hvað var gama hjá ykkur stöllunum... ég er nú eitthvað að huxa um að byrja með nýtt blogg.. þar sem mar er að fara að flytja til útlanda og svoleiðis.. þannig að tékkaðu bara endilega á hana:) Love ya Fríða

4:44 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe.. jámm... ég er greinilega strax farin að missa niður íslenskuna eins og sést á síðasta kommenti..hehe

4:45 e.h.  
Blogger agusta said...

jahá takkkk fyrir þessa yndislegu helgi, það væri nú gaman að endurtaka þetta einn daginn...

Gangi þér vel með allt þarna fyrir austan, ég bið fyrir þér og ykkur og við vitum að Guð er alltaf trúfastur!

Þú ert frábær og rosalega dugleg kona!!! óóójá

Síjú my alda...

Ágústa

4:41 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæhæhæhæhæ sæta !!!!!!!!!!
gaman að það er allt gott að frétta og nóg að gera í vinnunni , bara að kvitta fyrir komunni

3:01 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ ástin ooo hvað hefur verið gaman hjá ykkur ;) ooo þarf að fara að kíkja ;)
luv u
Knús og koss
Sara Natasha

9:52 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home