ferð í höfuðborgina :o)
jæja....bara stutt núna... er að vinna á fullu eins og þið sjáið :o) .... er svo að bruna í höfuðborgina með mönnunum í lífi mínu...hlakka svo til að fara í fjölskylduferð... Elsa Dögg systir mín er að fara að fermast... vona svo innilega að hún geri það af heilum hug og hjarta... verð svo sorgmædd þegar ég hugsa um þessa innantómu ferminga"hefð" sem tíðkast svo mikið hér á landi... bara gert til að gera eins og fá böns af pening og pökkum... á meðan Guð bíður þeirra með eilífa lífið...stærsta pakkann af öllum.. og þann eina sem skiptir einhverju máli :o(
jæja, fyrst ég er orðin svona döpur finnst mér tilvalið að setja inn eina mynd í þeim anda... það má samt brosa í laumi :o)
koss og knús og kreist, Alda.
(æææææææi...)
jæja, fyrst ég er orðin svona döpur finnst mér tilvalið að setja inn eina mynd í þeim anda... það má samt brosa í laumi :o)
koss og knús og kreist, Alda.
(æææææææi...)

7 Comments:
æææææææi elskan, hvernig getur þú brosað, þó það sé í laumi... úff greyið! ;)
Hlakka til að hitta þig í borginni ;)
Love you... Þín Ágú... STA
tíhíhí...ég held þetta sé bara plat Ágústa mín ;o) ....hlakka líka til að hitta þig :o) er komin til tengdó, komið miðnætti og Davíð hinn hressasti, inná baði að pissa með ömmu sinni! svona er höfuðborgarlífið! :oÞ
hæ ástin mín :) ertu í bænum og enn ógilega gaman að þú sért komin með blogg svo maður getur farið að fylgjast aðeins betur með þér ;)
Væri gaman að hitta þig ef þú hefur tíma en það vilja örugglega margir gera KNús og koss vonast til að sjá þig yndislegust ;)
luv ya
jú elsku Sara mín, er í bænum.... en lítur út fyrir að það verði aðeins of pakkaður dagur á morgun, og svo er bara farið aftur af stað í yndislegu sveitasæluna :o)
Þú verður bara að koma í heimsókn... hvað ertu búin að koma oft í heimsókn eftir að ég flutti fyrir 1 1/2 ári??? hmm.... ;o)
ái maður er bara kýldur niður :) það er rétt ég ætti að koma í heimsókn ;) Þú hefur ekki heldur komið til mín, mín kæra hefur aldrei séð hvar ég bý. Veit samt að þú ert yfir pökkuð þegar þú kemur ;) Verðum bara að laga þetta :) Hafðu það gott í sveitinni snúllan mín og ótrúlega gott að geta allavegana fylgst með þér :) Knús og koss ;)
hey alda mín.......ég er með geeeeðveikt góða hugmynd fyrir þessa bloggsíðu þína!!!! skooooo.....af því að þú ert svo langt í burtu frá mér og átt þar af leiðandi erfiðara með að ala mig upp sem húsmóður.....þá finnst mér að þú ættir að setja inn eitthvað af þínum frægu uppskriftum hérna!!! þúst....svona best of alda.....eins og ógeðslega góðu ostapipareitthvaðsósuna þína....og þessa pítsuuppskrift sem ágústa var að tala um....ég er alltaf að leita eitthvað á netinu þegar mig langar að elda eitthvað gott....og hugsa alltaf ohhh hvernig gerði alda þetta aftur...ha?!!! já.....ég pant uppskriftahorn!!!
en allavega...takk fyrir síðast elskan mín....ógó gaman að sjá ykkur skvísurnar aðeins!!
Loveya!!
Þín B.
hey snilldarhugmynd Bryndís... þá get ég grobbað mig í beinni :o)
....legg málið fyrir nefnd og læt þig svo vita :o)
kissíkissí..
Skrifa ummæli
<< Home