ALDA SVEITASTELPA :O)

Verið ávallt glaðir í Drottni, ég segi aftur: verið glaðir! Fil.4:4

Nafn:
Staðsetning: Eyjólfsstaðir, Egilsstaðir, Iceland

þriðjudagur, október 24, 2006

America

Jæja..... ég er búin að sanna mig vel sem ömurlegur bloggari... sorry framtaksleysið... fer að vinna í þessu þegar regla kemst á hlutina... jejeje... Ég hef gert ýmislegt síðan ég skrifaði síðast.. en ekkert sem er frásögu færandi þannig...

en nú er ég nýkomin heim frá Ameríkunni stóru og það var mikið gaman og mikið fjör! Því ekki að skella inn smá ferðasögu... Við fjölskyldan ákváðum að skella okkur í smá síðbúið sumarfrí eftir annasamt sumar.
Ákveðið var að taka stefnuna á Minneapolis, Minnesota og heimsækja góð vinahjón okkar, Ágúst Valgarð og Kolbrúnu... og gullmolana þeirra, Margréti Maríu og Sigurjón Óla.
Við fórum með vinum okkar, Óla og Lísu, í ferðina og það var algjör snilld.

Allt gekk vel á leiðinni út, Davíð algjör draumur í dós og allt eins og best væri á kosið. Þegar við mættum á svæðið, þeas USA svæðið :o) var 30 stiga hiti... "mmm...dásamlegt" hugsaði ég, "eins gott að ég pakkaði ekki dúnvestunum okkar eins og ég ætlaði..." Jæja...er þá ekki betra að pakka aðeins of miklu en of litlu... því næsta dag var hitinn rétt yfir frostmarki og Ameríka heiðraði okkur það sem eftir var ferðarinnar með alvöru Íslenskum kulda! Ég notaði því dúnvestið hennar Kolbrúnar eins og mér væri borgað fyrir það... smá rúllupylsufýlingur þar sem það var svona 3 númerum of lítið...en ooo well...

Unnar var mest með Ágústi og Óla í allskyns kirkjustússi, kíkti m.a. í skólann hans Ágústar og fór á allar samkomur sem hann gat mögulega komist á.... Á meðan vorum við konurnar í aðeins veraldlegri pælingum... eins og að versla og svo aðeins að versla... jú og svo versluðum við aðeins líka :o) ...nei, djók.. við versluðum reyndar alls ekki svo mikið...jaa...ok, kannski ekki lítið...en alls ekki eins mikið og ég hélt eða hafði gert ráð fyrir.

Ég held að ég sé að mörgu leiti mikill Ameríkani í mér.. .ég gæti vel hugsað mér hamborgaraát og sukkskyndibita á þessu verði sem er þarna úti... myndi fljótt falla vel undir skilgreininguna "hamborgararass"... kannski ágætt að skyndibitinn er svona dýr hér á landi :o)

Svo eru æðislegar kristilegar bókabúðir þar sem er heldur betur hægt að gleyma sér í… allt svo flott.. Svo eru bara geggjuðustu föndurbúðir sem ég hef nokkurn tímann séð.. og svo ódýrar!!!! Þetta er eins og að labba inn í búð sem samanstendur af Blómavali, garðheimum, föndru og virku (100 x stærri auðvitað...) og er með verðlag eins og í Tiger eða ótrúlegu búðinni!!!!!!!!!!!!!!

Oooooo hvað ég væri til í að fara bara í svona búðir einhvern tímann seinna þegar ég verð rík og kemst aftur til USA! Kolbrún, elsku kellingin mín, var þolinmóðust í heimi, dröslaði okkur í allar þessar búðir með bros á vör og barnastrolluna með sér. Hún er mest í scrappbókagerð en ég í bútasauminum.. við vorum báðar sammála um að halda okkur frá áhugamálum hvorrar annarar.. að gera bæði er bara of mikið! ….en hvað það væri samt gaman… :o)

Ég keypti slatta af bútasaumsefnum, hugsa sér að ég skuli borga 300-650 íslenskar krónur fyrir meterinn þarna úti á meðan ég borga ca 1000-1500 krónur hér! Nú skil ég eiginlega ekkert í mér að hafa ekki keypt miklu miklu meira!!! En þetta var svosem dágóður slatti :o)

Æji, þetta verður alltof langt ef ég ætla að segja frá öllu sem við gerðum.. þannig að nú verður smá samantekt á restinni. Við fórum í Mall of America.. viðbjóðslega stór og ég gerði lítið annað en að æða um á fyrstu hæðinni (af fjórum…) og reyna að ákveða hvaða búðir ég ætti að kíkja í. Við vorum í 8 klst þarna og ég fór aldrei af fyrstu hæðinni!!!!! Þetta er galið alveg hreint!!!

Svo var farið í Childrens museum með börnin þar sem þau fengu að njóta sín í öllu mögulegu, allt sérhannað fyrir þau… kíkið bara á síðuna ef þið eruð forvitin um hvað það er… þá þarf ég ekki að skrifa meira um það… :o) http://www.mcm.org/

æji það var svo margt…Fórum að sjálfsögðu í kirkjuna þeirra, okkur var boðið í mat nokkrum sinnum hjá yndislegum hjónum úr ýmsum áttum…

fór á MOPS, sem stendur fyrir Mothers Of PreeSchoolers.. föndurkvöld í kirkju þeirra hjónanna, spes fyrir konur með leikskólakrakka, börnin eru í gæslu á meðan í rosa kósý barnaherbergi á meðan!… Kolbrún fer alltaf þangað :o)

Borðaði rosa góðan indverskan mat með Lísu og Kolbrúnu, villtumst aðeins í downtown Minneapolis ég og Kolbrún með óþreyjufull börn… það var áhugavert :o)

Fórum í outlet mall sem er bara risa útsölumarkaður, allt ofuródýrt….

Ég gæti haldi áfram leeeeeeeeeeengi.. en hugsa að ég fari að láta staðar numið. Svo fórum við Unnar og Davíð til Kanada, fengum lánaðan geggjaðan bíl, Jeep Wrangler, og áttum frábæran tíma saman þar.

Hittum vinahjón okkar, AJ og Angelu, ásamt syni þeirra, Issac og bumbubúa, sem von er á fljótlega :o) Davíð og Isaac smullu vel saman, það var snilld. Þar fórum við í nokkrar búðir í viðbót…borðuðum bestu “cinnamon bunn” sem ég hef á ævi minni smakkað… fórum á tónleika með Ragnheiði Gröndal :o)

…pabbarnir fóru í zoo með litlu guttana…prufuðum góða veitingastaði…Unnar og AJ fóru í gocart…. O.s..frv…

Það var rosa margt skemmtilegt sem maður GERÐI…. En samt er það einhvern veginn ekki það sem stendur uppúr.. .heldur það hvað var frábært að kynnast Ágústi og Kolbrúnu á nýjan hátt, einnig Óla og Lísu, og fá að vera partur af þeirra heimilishaldi í smá tíma. Við vorum svo blessuð eftir þessa ferð og lærðum svo margt nýtt um okkur sjálf, Guð og vini okkar. Algjör snilld!

Svo var haldið heim á leið.. ferðin heim var reyndar ekki alveg jafn þæginleg og ferðin út.. Davíð var veikur allan tímann og grét nánast alla leiðina.. en því lauk þegar hann hafði fast land undir fótum.. ahhhh hvað er alltaf gott að komast heim í landið sitt… hlakk svoooooooooooo til að fara alla leið heim..

Fyrst tekur við rúm vika hér í bænum þar sem við mæðginin tjillum saman.. Unnar þarf að fara heim að vinna… svo förum við í bústað með mömmu og öllu hennar systkinastóði, mökum og börnum.. það verður rosa gaman, svona bútasaums-borða mikið-hlæja mikið-sofa lítið-verða kalt í heitapotti bústaðarferð…ooo ég hlakka svo til :o)

Jæja, þau ykkar sem meikuðuð þennan laaaaaaaaaanglokulestur verðið að skrifa í gestabókina……….ænei, ég er ekki með gestabók, þarf að læra að búa eina slíka til… jæja, skrifa comment þá… þið eruð hetjur :o)

Koss og knús þar til síðar.. Alda palda.

hey...gleymdi... ógeðslega fyndið... kíkið á þetta!!!!

http://humor.is/Link/view/25637

ég hlæ svo sjaldan upphátt þegar ég er í tölvunni... en þetta er bara too much! ég pissaði næstum því í nýju fínu gallabuxurnar mínar!

föstudagur, júní 30, 2006

brjálað að gera í sveitasælunni :o)


Jæja....þá er að koma miðnætti á þessum annasama föstudegi og ég fann smá tíma til að setjast niður og blogga :o)
Þetta er búinn að vera rosa kreisí tími í mínu lífi þessi undanfarni mánuður. Við höfum séð um gistiþjónustuna og fjölskylduviku. Guð er að tegja mig og toga svo mér finnst ég vera að slitna í sundur...en Hann tosar ekki meira en ég þoli, svo ég lafi enn saman.
Ég er búin að vera í miklu baksi með þetta allt... Unnar er með "þetta er ekkert mál-sjónarhornið" fyrir okkur bæði.
Mér hefur hinsvegar fundist þetta mikið mál og bara ferlega erfitt. Mér hefur verið sérstaklega illt í hjartanu Davíðs vegna... finnst ég vanrækja hann og bara sinna honum á hlaupum. Hann plummar sig samt fínt þessi elska... er voða kátur með allt þetta brölt og vesen.
Ég er að reyna að taka ábyrgð á þessari ákvörðun okkar að sjá um þetta batterý,og reyni að sameina þetta eins og ég get. Núna erum við komin með fleiri duglega krakka svo ég sé fram á að geta sett meira fyrir og verið svo meira með Davíð, minna í verkunum. Ég hlakka til og sé fyrir mér eðlilegra fjölskyldulíf :o)
Annars gengur allt rosa vel hér. Fullt að gera og allt gengið upp og gestir farið ánægðir með dvölina.
Elín Svava systir mín er nú á leiðinni frá Reykjavík með Dagnýju vinkonu sinni, og ætla þær að kíkja í heimsókn til okkar :o) Hún hefur aldrei komið hingað, svo það er tími til kominn finnst mér! Maður má nú alveg sinna stóru systur stundum :o)
....hey, og já! ekki má nú gleyma því að ég er að fara í sumarfrí!!! betur sleppt því að væla yfir hvað þetta væri allt erftitt... við litla fjölskyldan erum að fara í sumarbústaðinn okkar í Vopnafirði í heila viku!!! oh hvað verður gaman og ég er orðin svo spennt. Villa bauðst til að leysa okkur af fyrstu vikuna í júlí...sem er bara bráðum! við förum strax eftir samkomu á sunnudag :o) Magnað meiriháttar frábært :o)
Jæja, nú er ég farin að dotta yfir tölvunni... langur dagur framundan svo ég hugsa að ég fari að skella mér í háttinn :o)
koss og knús....og sérstakt kreist til ykkar sem nenntuð að lesa þessa ruglingslegu langloku *kreist!!!!*
Alda palda.

miðvikudagur, maí 24, 2006

ég er á lífi og meira en það :o)

Jæja, þá er ég komin aftur :o)
Ég átti alveg yndislega helgi með Ágústu... hún kom fljúgandi til mín á föstudag, hjálpaði mér að búa um rúm í gistiheimilinu... og svo var brunað af stað á Akureyri.... AKUREYRI HJER VÍ KOMM!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Það var spáð lélegu veðri, en ég bað Guð um að gefa okkur gott veður, sem hann og gerði! Hann er snillingur! Svo kom nokkru sinnum snjókoma á leiðinni, þá minntum við Guð á það sem hann hafi heitið okkur, og viti menn... blár himinn sýndi sig innan mínútu í HVERT EINASTA SKIPTI!!! Þetta var svo magnað að upplifa! Þessi kraftur sem bjó í Jesú þegar hann starfaði hér er svo sannarlega í okkur, og Guð vill leyfa okkur að nota hann!

Við áttum rosa ljúfa stund fyrir norðan.. vorum á yndislegu gistiheimili sem heitir Akurinn. Kristin hjón reka staðinn og andrúmsloftið var svo friðsælt og við sváfum eins og ungabörn!
Þess á milli borðuðum við á okkur gat...fórum bæði kvöldin í röð á Greifann og borðuðum í bæði skiptin það sama¨!!!!!!!!!!!! Sjúklega gott og mæli með því fyrir alla sem fara á Akureyri!!! Fengum okkur ostaveislupizzuna, bættum á hana pepparoni og sveppum og drekktum henni svo að lokum í hvíííííííítlauksolíu...namminamm!!! svooooooooooooooooo gott!!!

Svo fórum við í sund og enn of aftur var snjókoma. Við báðum Guð um að fá sól...og skýin fuku í burtu og blár himinn birtist!!!! Þetta var algjör snilld... og svona svaraði hann okkur hvað eftir annað alla helgina!
Guð er góður segi ég nú bara!

Svo er allt komið á fullt hér í sveitasælunni... gistiheimilið er komið í gang. Ég var í allan gærdag að baka brauð.... og er svo að vinna í dag og út vikuna og svo get ég hellt mér í Eyjólfsstaði.

Hmmm...ég verð eiginlega að skrifa meira seinna...það er svo allt of mikið að gera og meira en það! orðin of sein í vinnuna... koss og knús.. munið að skrifa komment svo ég viti að þið hafið kíkt..ég er ennþá svo mikill nörd í þessu og kann ekki að setja inn gestabók :o/
Guð blessi þig í dag!

föstudagur, maí 12, 2006

ferð í höfuðborgina :o)

jæja....bara stutt núna... er að vinna á fullu eins og þið sjáið :o) .... er svo að bruna í höfuðborgina með mönnunum í lífi mínu...hlakka svo til að fara í fjölskylduferð... Elsa Dögg systir mín er að fara að fermast... vona svo innilega að hún geri það af heilum hug og hjarta... verð svo sorgmædd þegar ég hugsa um þessa innantómu ferminga"hefð" sem tíðkast svo mikið hér á landi... bara gert til að gera eins og fá böns af pening og pökkum... á meðan Guð bíður þeirra með eilífa lífið...stærsta pakkann af öllum.. og þann eina sem skiptir einhverju máli :o(
jæja, fyrst ég er orðin svona döpur finnst mér tilvalið að setja inn eina mynd í þeim anda... það má samt brosa í laumi :o)
koss og knús og kreist, Alda.


(æææææææi...)




miðvikudagur, maí 10, 2006

ÖLL ÞESSI AFMÆLISBÖRN!



HÚN ÁTTI AFMÆLÍ HITTIFYRRADAG
HÚN ÁTTI AFMÆLÍ HITTIFYRRADAG
HÚN ÁTTI AFMÆLÚN DÓRA HRÖÖÖÖÖÖÖÖNN
HÚN ÁTTI AFMÆLÍ HITTIFYRRADAG!!!!
HÚRRA HÚRRA HÚRRA!!!!!!






auðvitað mundi ég eftir henni elsku Fríða mín... ég veit ekki hvað ég var að hugsa að skrifa það ekki líka... en betra er seint en aldrei ekki satt?? Ég reyndi samt að skrifa afmæliskveðju á síðuna hennar, en hún er læst!!!!!! hvurslags er það eiginlega!!! ég ekki með leyniorð!!!! sármóðguð!



Svo er hér annað afmælislag fyrst maður er byrjaður...

HANN ÁTTI AFMÆLI Í FYRRADAG
HANN ÁTTI AFMÆLI Í FYRRADAG
HANN ÁTTI AFMÆLANN KJARTAN ÍSAAAAAAAAK
HANN ÁTTI AFMÆLI Í FYRRADAG!!!!!
HÚRRA HÚRRA HÚRRA!!!!!!!!






Hvað er málið með öll þessi afmæli í maí!! Mér finnst allir eiga afmælí maí!!! svo fór ég að hugsa...

"hmmmm....hvað er að gerast 9 mánuðum áður..... jú þetta er sveitarómantíkin um verslunarmannahelgi!!!....allir skotnir í ullapeysum í tjaldi....úúúú...." !!!!

annars er allt fínt að frétta héðan úr sveitinni... ískalt í dag.. þetta land er alveg frábært! í gær var ég gjörsamlega að kafna, svo fór ég í dúnvesti í vinnuna í dag!

Mér finnst þetta ósköp mikið vesen stundum.. ég á að klæða Davíð eftir veðri fyrir leikskólann, sem þýðir að ég þarf að senda hann með regngalla, vindgalla, snjógalla, stuttbuxur, bol og sólarvörn!! hvernig á maður að vita hvað hentar eftir 2 klukkutíma!

jæja, hætt að tuða og farin að vinna... kissíkissí... Alda.

mánudagur, maí 08, 2006

AFMÆLISSTELPAN HÚN ÁGÚSTA!


HÚN ÁTTI AFMÆLI Í GÆR,
HÚN ÁTTI AFMÆLI Í GÆR,
HÚN ÁTTI AFMÆLÚN ÁGÚSTAAAAAAAAA HÚN ÁTTI AFMÆLI Í GÆR!!!!
HÚRRA HÚRRA HÚRRAAAAAAA!!!!!
Til hamingju með daginn elskan mín!



Annars sit ég í steikjandi hita og lafi fyrir framan tölvuna...en nú verður breyting á... ætla út að njóta náttúrunnar!!!

koss og knús, Alda.

föstudagur, maí 05, 2006

Jeij!!!! nú er stuð!


Ég er svo glöð :o)
Ég og Ágústa vinkona mín ætlum að skella okkur norður á Akureyri bara tvær! Í tilefni þess að hún á afmæli núna á sunnudaginn ákváðum við að láta eftir okkur smá dekur! Reyndar ekki fyrr en eftir 2 vikur...en ég er samt orðin spennt :o)

Við ætlum að skella okkur í leikhús, borða, sofa, sauma, þvaðra og kannski finna júróvísjón stemningu einhversstaðar ef Sylvía ræfillinn meikar það í aðalkeppnina...

Ég myndi nú ekki kaupa mér sjónvarp í BT í fullvissu um að Silvía sigri keppnina og ég fái sjónvarpið endurgreitt... en það verður samt gaman að horfa á hana og fá þennan vandræðalega hroll og gæsashúð yfir að vera íslendingur á þessari stundu.

jæja, nóg í bili, meira seinna...

fimmtudagur, maí 04, 2006

nú þarf ég að standa mig í stykkinu!

Jiiiiiiiiiiiiiiiii....ég trúði því varla þegar ég opnaði bloggið mitt að það væru komin 2 komment!!!!! ég ákvað að prufa fyrst að blogga einu sinni og ath hvort ég myndi nokkuð nenna því aftur áður en ég segði nokkrum manni frá!!!! Úff, en nú er pressan komin! 2 comment sem ég verð að standa undir!!!! ;o)

Ég er alsæl í sveitinni...er að vinna núna...smá pása. Það er yndislegt veður hér í skóginum, sól og sumar, og ég klæddi mig í sumarlegt pils og tilheyrandi í tilefni veðurs :o)
Davíð er í aðlögun í nýja leikskólanum með pabba sínum... rosalega er skrítið að vera allt í einu án hans! Ég stend mig stöðugt að því að vera með puttana í þessu... hvernig hann er klæddur, hvort hann sé með snuð... Ég þarf aðeins að bakka og leyfa Unnari að spreyta sig, enda gerir hann það með glæsibrag!

Það var snilldar flugdrekakennsla í skólanum í dag, maður frá Panama kom og kenndi okkur flugdrekasmíð frá Guatemala... þar tíðkast að þegar einhver deyr er gerður flugdreki með mynd af viðkomandi, og ýmsum orðum sem tengjast honum...bara það sem fólki finnst persónulegt og minnir á hann.. svo er flugdrekinn látinn fljúga yfir þorpið og allir taka þátt í að syrgja og samhryggjast. Soldið falleg aðferð finnst mér :o)

Börnin hér í Hallormsstaðaskóla eru hins vegar ekki alveg eins alvörugefin í þessu...einn teiknaði hauskúpu og sjóræningjaskip, annar gerði merki AC/DC hljómsveitarinnar ofl..
það sem snerti mest við mér er lítil 6 ára stelpa sem gerði flugdreka fyrir mömmu sína sem dó fyrir ári síðan. Ég held að henni hafi líka þótt gott að gera þetta...gat talað um dauða hennar á meðan hún var að búa til drekann...sem var gullfallegur.

Jæja, nóg í bili...koss og knús... Alda bloggari :o)

set með eina mynd sem ég var að finna... skírnin hans Davíðs :o)

mánudagur, apríl 24, 2006

það er að gerast!!!!

Jæja....er það virkilega að gerast? Er Alda anti bloggari virkilega að stíga sín fyrstu skref? Getur það staðist????!!!!!!!!!!!!!!

jú, mikið rétt... ég ákvað að drusla mér í þetta líka... svo er bara að sjá hversu dugleg ég verð að skrifa...ekki búast við glamúrsíðu með mörgum myndum...ég er sveitastelpa með gömlu góðu hringi nettenginguna :o/ ég bý á austurlandi, á Eyjólfsstöðum á Völlum, og það er yndislegt :o) Með mínum dásamlega Unnari og okkar litla freka sæta Davíð... :o)















































....jæja...strax orðin hugmyndasnauð... Guð blessi þig og sjáumst kannski aftur hér á þessu framúrstefnulega bloggi MÍNU!! jahérnahér....Alda.